Við erum á leiðinni!

Uppscript er nýjung á íslenskum markaði fyrir alla þá sem hafa áhuga á matseld, skipulagi og sparnaði.

splass.png

Hvað er Uppscript ?

Uppscript er snjallsímaforrit fyrir bæði iOS og Android og er það rétt um þessar mundir að verða klárt í Beta prófanir. Eins og nafnið gefur kannski til kynna leggjum við mesta áherslu á uppskriftir en það er svo margt fleira sem við hreinlega getum ekki beðið eftir að kynna fyrir ykkur!

Screenshot 2020-09-17 at 23.32.43.png
Screenshot 2020-09-17 at 23.29.06.png

Flokkar

Til að upplifun þín sé sem þægilegust eru uppskriftirnar í appinu flokkaðar í yfirflokka annars vegar og hins vegar undirflokka.

MenuScreen.png
Screenshot 2020-09-18 at 18.11.54.png
Screenshot 2020-09-17 at 23.29.06.png

Matseðill

Að skipuleggja matseðil fyrir vikuna getur verið einstaklega hentugt. Það getur sparað okkur tíma og pening þegar kemur að innkaupum fyrir heimilið.

Bæta uppskrift á matseðil

Þú getur bætt hverri uppskrift innan appsins á þinn eigin matseðil með því að smella á hnappinn neðst í lýsingu.

Tímaflakk

Þú getur skipulagt matseðil fyrir vikuna, mánuðinn og jafnvel árið. Einnig er hægt að skoða matseðla aftur í tímann.

Breytanleiki

Ef uppskriftin þín er ekki til í appinu er ekkert mál að bæta eigin hlutum á matseðilinn. Þá er hægt að eyða út úr matseðli og bæta inn að nýju eftir þörfum

Screenshot 2020-09-18 at 18.20.53.png
Screenshot 2020-09-18 at 18.15.36.png
SingleCategoryScreen(2).png

Innkaupalisti

Að hafa matseðil og innkaupalista í sama appinu er þægilegt

Bæta á innkaupalista

Þú getur bætt hráefnum hverrar uppskriftar á innkaupalista með einum smelli og fjarlægt þau jafn auðveldlega.

Hreinsa lista

Þegar búðarferðinni er lokið getur þú hreinsað það sem búið er að kaupa af listanum með einum smelli.

Annað

Ef þig vantar eitthvað annað en hráefni úr búðinni er lítið mál að bæta því við.

Screenshot 2020-09-19 at 16.25.18.png
Screenshot 2020-09-19 at 16.26.54.png

Leit eftir hráefnum

Hefuru ekki tíma til að fara í búðina? Langar þig að geta hent inn því sem þú finnur í ísskápnum og fá uppskrift sem hentar? Uppscript reddar því.

Uppscript býður upp á fleiri möguleika!

Það er þitt að komast að hverjir þeir eru.